Skip to main content

Hlustum og tölum saman

Hlustið á smásöguna „Allt gott“ eftir Hörpu Jónsdóttur, þar sem María segir frá einelti og kynferðislegu ofbeldi sem henni finnst hún ekki hafa tekið neinn þátt í. Hlustið síðan á sérfræðinga ræða um efnið.
Notið verkefnið „Tölum saman“ til að hugleiða efni sögunnar og spjalla um það.

Hver er besti vinur þinn?

Oda hlakkar til að fara í skólabúðir með bekknum sínum. En rútuferðin þangað verður ekki eins og hún hafði vonað. Því hún er sú eina sem fær ekki að sitja með hinum. Horfið á brot úr myndinni „Hver er besti vinur þinn“ og talið saman á eftir um hvað gerðist í myndskeiðinu.

Láttu þér standa á sama

Oda er einmana og finnst hún ekki fá að vera með hinum stelpunum. Hvernig fer þegar skólahjúkrunarfræðingurinn býður stelpunum að koma og ræða málin. Horfið á myndbrotið „Láttu þér standa á sama“ og talið saman á eftir um hvað gerðist í myndbrotinu.

Aukaverkefni