Mynd er deilt
Dýpkum þekkinguna: Að deila myndum
Dæmi um það eru óumbeðnar nektarmyndir, dreifing á nektarmyndum, suð um að fá sendar slíkar myndir og jafnvel er þvingunum og hótunum beitt til að fá sendar fleiri myndir eða grófari. Einnig kemur fyrir að fölsuðu myndefni sé dreift á stafrænum vettvangi, bæði með myndum og texta.
Lestu á vef Neyðarlínunar um nektarmyndir og hvað er hægt að gera ef þú ert að fá sendar myndir eða ert beðin um myndir.
Vinnið saman í pörum, hópum eða lesið sjálf textann sem bent er á. Ræðið spurningarnar og skráið niður svörin ykkar. Munið að þið eigið öll rétt á að segja ykkar skoðun og engin ein skoðun er rétt. Veljið ykkur einhvern sem stýrir umræðum þannig að öll komist að.
Verkefni 1
- Ræðið og hugleiðið hverjar gætu verið ástæðurnar fyrir því að einhver suðar um að fá nektarmyndir.
- Af hverju getur verið erfitt að upplifa að einhver sé að biðja um nektarmyndir?
- Skrifið niður tillögur um hvað hægt væri að segja við einhvern sem suðar um nektarmyndir.
- Hvað getið þið gert ef þið hafið ýtt á einhvern eða þrýst á einhvern, til að senda nektarmyndir og þið sjáið eftir því sem þið gerðuð?
Það er ólöglegt að framsenda nektarmyndir annarra, án þess að sá sem er á myndinni hafi sagt að það sé í lagi.
- Hvað getið þið gert ef þið vitið að nektarmyndir af ykkur hafi verið sendar áfram? Hugmynd væri að nota þessa fyrirsögn til að skrifa niður ráðleggingar fyrir þau sem lenda í þannig atviki. Nektarmynd af mér er deilt, hvað geri ég?
- Hvert getið þið leitað ef þið vitið (eða óttist) að nektarmyndum af ykkur hafi verið deilt?
Verkefni 2
- Hvað finnst ykkur mikilvægt fyrir börn að læra um að deila myndum?
- Útbúið í sameiningu kynningu eða skrifaðu frétt eða grein sem gæti hentað fyrir nemendur í 5.-7. bekk til að fræða þau um hættur í því að deila nektarmyndum af öðrum
Má þetta?
Lesið á vef Neyðarlínunar hvað er sagt um að deila og taka við nektarmyndum.
Vinnið saman í pörum, hópum eða lesið sjálf textann sem bent er á. Ræðið spurningarnar og skráið niður svörin ykkar. Munið að þið eigið öll rétt á að segja ykkar skoðun og engin ein skoðun er rétt. Veljið ykkur einhvern sem stýrir umræðum þannig að öll komist að.
Notið ykkar eigin orð til að svara spurningunum hér að neðan.
- Hvað segir á síðunni um að senda nektarmyndir til kærustu eða daðra? Má það?
- Hvað segir á síðunni um að framsenda eða deila nektarmyndum af öðrum? Má það?
- Hvað segir á síðunni um að senda nektarmyndir á einhvern sem vill ekki slíka mynd? Má það?
- Hvað segir á síðunni um að senda nektarmyndir til fólks yngra en 16 ára? Má það?
- Hvað getur þú gert ef einhver sendir þér nektarmyndir sem þú vilt ekki?
Fjárkúgun á netinu
Lesið á vef Neyðarlínunnar greinina Ráð fyrir börn og unglinga. Greinin fjallar um að börn og unglingar lendi stundum í áreitni á netinu, til dæmis að persónulegum eða kynferðislegum myndum sé deilt án leyfis eða að lenda í neteinelti.
Vinnið saman í pörum, hópum eða lesið sjálf textann sem bent er á. Ræðið spurningarnar og skráið niður svörin ykkar. Munið að þið eigið öll rétt á að segja ykkar skoðun og engin ein skoðun er rétt. Veljið ykkur einhvern sem stýrir umræðum þannig að öll komist að.
- Hver er ráðgjöf Neyðarlínunnar til að vernda ykkur á netinu? Búið saman til stutt myndband eða upplýsingaplakat sem hjálpar til við að dreifa ráðleggingunum.
- Hvað mælir Neyðarlínan með að gera ef þið verðið fyrir fjárkúgun á netinu? Ræðið saman um þau ráð.
- Hvar getið þið fengið aðstoð ef þið lendið í fjárkúgun á netinu?
Lesið einnig á vef Lögreglunnar grein sem fjallar um aðgerðir á Instagram til að vernda ungmenni gegn kúgun á netinu.
- Hvaða aðgerða er búið að grípa til til að bregðast við kúgun?
- Hjálpist að við að stilla Instagram ykkar til að draga úr hættu á að lenda í fjárkúgun.
