Réttur til að velja sér maka

Nauðungarhjónaband
Ef þú neyðist til að ganga í hjónaband gegn vilja þínum kallast það nauðungahjónaband og er mansal.
Hvað er nauðungarhjónaband?
Nauðungarhjónaband er þegar manneskja er neydd í hjónaband sem hún vill ekki ganga í. Það gæti verið til að fá réttindi eða til að hinn aðilinn hagnist á því, til dæmis til að fá dvalarleyfi eða ríkisborgararétt.
Þú gætir verið í nauðgunarhjónabandi ef:
- Þér er hótað, eða þrýst á þig með ofbeldi eða annars konar þvingunum til að giftast einhverjum sem þú vilt ekki giftast.
- Þú neyðist til að giftast einhverjum sem hagnast á því með því að fá dvalarleyfi eða ríkisborgararétt.
- Þú vissir ekki að þú værir að fara að gifta þig.
- Þú mátt ekki tala um hjónabandið þitt við aðra.
- Þér er lofað dvalarleyfi, ríkisborgararéttur eða peningar í staðinn fyrir að ganga í hjónaband.
- Einhver annar hagnast á því að þú gangir í hjónaband gegn vilja þínum.
Ert þú í nauðungarhjónabandi? Hafðu samband við 112 og fáðu hjálp.
Heimild: Neyðarlínan Nauðungarhjónaband
Þekktu mansal
Aðferðir þeirra sem stunda mansal eru þekktar. Ef þú þekkir einkenni og aðferðir við mansal, þá eykur þú líkurnar á að uppræta það.
Aðferðir þeirra sem stunda mansal
- Tæling. Gerandinn er góður í að finna fólk sem er á einhvern hátt í viðkvæmri stöðu. Markmiðið er að ná stjórn á manneskju svo hægt sé að þvinga hana til að framkvæma eitthvað og hagnast á því.
- Val á manneskju. Gerandinn velur sér einstakling sem er í viðkvæmri stöðu. Til dæmis einhvern sem er að leita sér að betra lífi annars staðar vegna fátæktar. Það gæti líka verið innflytjandi sem þekkir ekki hvaða lög og reglur gilda um atvinnu eða aðrar aðstæður í nýju landi og samþykkir því kannski hluti sem hann myndi ekki samþykkja annars.
- Öðlast traust. Gerandinn passar að þolandinn fái allt sem hann þarf eftir fyrstu kynni. Til dæmis útvegað húsnæði, síma eða annað sem þolandi gæti þurft og myndar þannig traust.
- Einangrun. Fyrstu sjáanlegu merki mansals er oft þegar gerandi einangrar þolandann, heldur honum frá fjölskyldu sinni og aðstæðum sem gætu upplýst þolandann um að sé verið að blekkja hann.
- Hagnýting. Þolandinn er notaður í vinnu sem gerandinn græðir á, til dæmis með því að greiða lægri laun og hirða mismuninn sjálfur eða greiða engin laun og segja að laun þolandans fari upp í skuld fyrir ferðakostnað eða lækniskostnað eða annan kostnað sem gerandinn hefur útvegað þolandanum.
- Viðhalda stjórn. Gerandinn hefur mikil völd, til dæmis með því að taka vegabréf og önnur skilríki og pappíra af þolandanum, hóta að beita hann eða fjölskyldu hans ofbeldi ef hann gerir ekki það sem honum er sagt. Oft er þolanda kynlífsmansals sagt að sala á vændi sé ólögleg á Íslandi og hótað að ef hann gerir ekki eins og honum er sagt, þá muni gerandinn tilkynna hann til lögreglunnar og honum verður refsað – en það er ekki satt.
Heimild: Neyðarlínan Þekktu mansal

