Uppeldi eða ofbeldi

Hvað virkar í uppeldi
Að ala upp barn er eitt mikilvægasta og mest krefjandi verkefni sem foreldrar takast á við í lífinu. Uppeldishlutverkið hefst strax við fæðingu barns og felur í sér að annast það, vernda, kenna því og veita leiðsögn. Markmið góðs uppeldis er að barnið verði heilbrigt, vel aðlagað, hamingjusamt og hafi færni sem kemur því til góða í framtíðinni. Uppeldisfærni er hins vegar hvorki meðfædd né kemur sjálfkrafa, heldur tekur tíma að tileinka sér nauðsynlega þekkingu, kunnáttu og hæfni.
Mikil gróska hefur verið í rannsóknum um uppeldi og hefur því þekking safnast sem bæði fagfólk og foreldrar geta nýtt sér. Þannig höfum við áreiðanlegar upplýsingar um hvaða leiðir eru vænlegri en aðrar til árangurs í uppeldi og hvað er líklegast til að stuðla að velferð barna til framtíðar.
Nokkur atriði sem mælt er með að foreldrar geri
- Koma sér saman um skipulag uppeldisins og setja sér markmið.
- Ræða og ákveða hvaða hegðun og færni foreldrum finnst eftirsóknarverð í fari barnsins, núna og þegar barnið kemst á legg.
- Koma á föstum venjum frá upphafi sem setja ramma um daglegt umhverfi barnsins og veita því öryggi.
- Gera raunhæfar væntingar til barnsins og gefa skýr skilaboð um til hvers er ætlast af því.
- Vera vakandi fyrir allri æskilegri hegðun barnsins og bregðast við með athygli, hrósi eða annarri umbun.
- Velja og fylgja eftir fáum og skýrum reglum sem eru í samræmi við þroska og aldur barnsins.
- Setja börnum mörk og hjálpa þeim að læra að setja sér eigin mörk.
- Vinna að því að fyrirbyggja erfiðleika frekar en að bíða þar til vandamál koma upp.
- Hvetja markvisst til góðrar hegðunar með leiðsögn, kennslu og góðu fordæmi. Þetta þýðir að foreldrar þurfa að vera mjög meðvitaðir um sína eigin hegðun.
- Muna að börn læra það sem fyrir þeim er haft.
Einnig er mikilvægt fyrir uppalendur að:
- Verja reglulega tíma með barninu og skipuleggja skemmtilegar samverustundir allrar fjölskyldunnar.
- Vinna saman að því að leysa verkefni eða vandamál sem koma upp.
- Passa upp á sig sjálf og makasambandið og hika ekki við að leita aðstoðar sérfróðra fagmanna ef þörf krefur.
- Vanda sig og styðja hvort annað, jákvæð athygli og hrós sem foreldrar gefa hvoru öðru hafa ekki síður góð áhrif en á börnin!
- Muna að enginn er fullkominn, hvorki foreldrar né börn og að allir geta gert mistök.
Óheppilegar uppeldisaðferðir geta valdið ýmiss konar erfiðleikum í hegðun og tilfinningalífi barna og ungmenna. Börn sem búa við agaleysi, ósamkvæmni, hörku eða skort á stöðugleika og jákvæðri svörun eru líklegri til að þróa erfiða hegðun en önnur börn. Góð tengsl á milli foreldris og barns, jákvæð samskipti og notkun hróss eru hins vegar ákveðin vörn gegn þróun erfiðrar hegðunar.
Hvað er uppeldi?
- Uppeldi er það sem gert er til að styðja við þroska barna og kenna þeim hvernig þau eiga að haga sér.
- Það hvernig fyrirmyndir uppalendur eru og hvernig þeir bregðast við hegðun barna getur ýmist aukið líkurnar á því að börn hegði sér á æskilegan eða óæskilegan hátt.
- Hægt er að kenna öllum börnum ákveðna hegðun. Það fer hins vegar eftir meðfæddum eiginleikum barna hversu mikið foreldrar og aðrir uppalendur þurfa að hafa fyrir því.
- Til að uppeldi skili tilætluðum árangri þarf uppalandi að sýna barninu hlýju, gott fordæmi og nota aga á markvissan hátt.
Hvað er agi?
- Agi snýst ekki bara um að takast á við hegðunarerfiðleika.
- Árangursríkur agi er þegar barnið fær fyrirmynd, leiðsögn og kennslu frá uppalendum um hvernig skuli hegða sér.
- Notkun aga gefur barninu staðfestingu á því hvort það er að gera rétt eða rangt.
- Notkun aga stuðlar að því að börn finni fyrir öryggi og væntumþykju.
- Agi veitir börnum utanaðkomandi stýringu og mörk sem hjálpar þeim að læra sjálf að stjórna eigin hegðun.
- Sjálfsagi er mikilvægur fyrir börn í framtíðinni til að takast á við mótlæti og erfiðar tilfinningar s.s. reiði. Sjálfsagi kennir börnum líka tillitsemi og veitir þeim sjálfsöryggi til að standa á eigin sannfæringu.
- Hafa skal í huga að agi er notaður til að komast að ákveðnu markmiði en ekki markmið í sjálfu sér.
Hvað eru reglur?
- Reglur eru mikilvægar í uppeldi og nauðsynlegar til að ná góðum aga.
- Reglur ættu að vera fáar og skýrar, sértækar frekar en almennar og á jákvæðu formi frekar en neikvæðu. Þær ættu að segja hvað á eða má gera, frekar en hvað má ekki.
- Reglur þurfa að vera vel ígrundaðar og undirbúnar, helst af öllum uppalendum sameiginlega. Gott er að hafa reglurnar sýnilegar t.d. hengja þær upp á vegg.
- Reglur þurfa að vera sanngjarnar og raunhæfar bæði fyrir foreldra og börn. Annars verður erfitt að fylgja þeim.
- Ákveða þarf fyrirfram hvernig á að framfylgja reglum og hver viðurlög eru ef regla er brotin. Mikilvægt er að viðurlög beinist að hegðun barnsins en ekki því sjálfu.
- Tryggja þarf að barnið nái að þekkja og skilja þær reglur sem því er ætlað að fylgja.
- Gott er útskýra fyrir börnum af hverju reglur eru nauðsynlegar, t.d. með tengingu við íþróttir, umferð eða annað í raunveruleika barnanna.
- Nauðsynlegt er að framfylgja settum reglum, annars eru þær verri en engar.
- Reglur ættu að vera leið til að ná ákveðnu markmiði, en ekki að vera reglur reglnanna vegna.
Sérstaklega ber að varast að:
- Setja reglur sem ómögulegt er að fara eftir.
- Viðurlög séu of þung miðað við hegðunina eða of áberandi.
- Missa stjórn á skapi sínu og bregðast við í reiði.
- Skammast og tuða. Það skilar ekki árangri og veldur öllum pirringi, reiði og leiða.
- Lenda í þrætum við barnið í hita leiksins um reglur og mörk sem þegar hafa verið ákveðin.
- Umbuna fyrir óæskilega hegðun. Öll athygli, jafnvel skammir geta virkað sem umbun og því ýtt undir að barnið sýni óæskilega hegðun aftur.
- Niðurlægja barnið eða hæðast að því. Ekki meiða, hræða eða hóta barninu.
- Gefa tvöföld skilaboð, t.d. að orð og athafnir stangist á.
- Vera slæm fyrirmynd með orðum eða hegðun.
- Svíkja það sem lofað hefur verið eða gefa loforð sem ekki er hægt að standa við.
Heimild: Heilsuvera – Hvað virkar í uppeldi
