Skip to main content

Dýpkum þekkinguna: Heimilisofbeldi

Hvað er ofbeldi?

Á vef Neyðarlínunnar er búið að taka saman skilgreiningarnar á því hvað er ofbeldi. Það er til alls konar ofbeldi og ólíkir aðilar sem beita ofbeldi. Þið getið lesið betur um það ofbeldi sem búið er að skilgreina hér. Ofbeldi í nánum samböndum. 

Ofbeldi í nánum samböndum 

Ofbeldi er þegar einhver gerir eitthvað sem viljandi meiðir þig eða lætur þér oft líða illa. Það kallast ofbeldi í nánu sambandi eða heimilisofbeldi þegar sá sem beitir ofbeldinu er skyldur eða tengdur þér, til dæmis maki, fyrrverandi maki, fjölskyldumeðlimur eða umönnunaraðili. Ofbeldi getur átt sér stað óháð kyni, aldri, kynhneigð eða hverju öðru. 

Vinnið saman í pörum, hópum eða lesið sjálf textann sem bent er á. Ræðið spurningarnar og skráið niður svörin ykkar. Berið síðan svörin saman við aðra hópa sem ræddu það sama. 


Verkefni 1

Svarið þessum spurningum. 

  • Hvaða mismunandi tegundir af ofbeldi eru nefndar á vef Neyðarlínunnar? 
  • Veldu tvö af þeim ofbeldisformum sem nefnd eru og útskýrðu hvað einkennir þau. 
  • Við hvern geturðu talað ef þú verður fyrir ofbeldi? 
  • Skrifaðu stuttlega um hina ýmsu staði þar sem hægt er að leita eftir aðstoð samkvæmt Neyðarlínunni.  

Verkefni 2

Vinnið saman í pörum, hópum eða lesið sjálf textann sem bent er á.  Ræðið spurningarnar og skráið niður svörin ykkar. Munið að þið eigið öll rétt á að segja ykkar skoðun og engin ein skoðun er rétt. Veljið ykkur einhvern sem stýrir umræðum þannig að öll komist að.  

ðið eftirfarandi fullyrðingarnar: 

  • Það er ekki ofbeldi ef það særir ekki líkamlega. 
  • Það er ofbeldi að kalla einhvern ljótum nöfnum.  
  • Það er ekki ofbeldi ef það er meint sem grín. 
  • Það er ekki eins alvarlegt ef gerandinn segir fyrirgefðu. 
  • Að sjá fullorðna beita hvort annað ofbeldi getur verið skaðlegt fyrir börn og ungmenni. 

Verkefni 3

Hvað haldið þið að sé átt við með því að fólk geti orðið fyrir ofbeldi, án þess að vera meðvitað um það? 
Hjálpist að við að 
finna í hvaða tilfellum fólk gæti orðið fyrir ofbeldi án þess að gera sér grein fyrir því?
Eru einhverjir 
hópar varnarlausari en aðrir gagnvart ofbeldi?
Eru einhverjir hópar sem geta ekki staðið gegn einelti frekar en aðrir?
 

Button Text

Að fá hjálp

Hver getur hjálpað mér? 

Verkefni 1

Lesið á vef Neyðarlínunnar um Krakka og ofbeldi: Einnig er hægt að lesa um það á vef Neyðarlínunnar við hverja hægt er að tala ef þið verðið fyrir ofbeldi? Úrræði 

  • Hugleiðið hvers vegna það getur stundum verið erfitt að segja öðrum frá ef ykkur líður illa eða hafið orðið fyrir ofbeldi. 
  • Af hverju getur það samt hjálpað að tala við einhvern um það hvernig ykkur líður? 
  • Í textunum eru ýmis ráð um hvernig eigi að fara að því að tala um eitthvað málefni sem er erfitt. Veljið það sem ykkur finnst vera besta ráðið – og endursegið með ykkar orðum.  
  • Lesið saman boxið Hvernig tala ég við einhvern fullorðinn um áhyggjur mínar. Eru þið með fleiri ráðleggingar? 
  • Við hvern geturðu talað ef þú átt erfitt? 


Verkefni 2

Horfðu á þættina Leiðin áfram sem er um það hvað gerist ef þú hefur samband við barnavernd í ofbeldismálum?

  • Hvað á barnaverndarþjónusta að hjálpa börnum og ungmennum með? 
  • Hvað gerist ef barnaverndarþjónusta fær tilkynningu um ofbeldismál einstaklings? 
  • Í þáttunum Leiðin áfram kemur fram að Barna- og fjölskyldustofa hafi nokkra mánuði til að rannsaka mál sem þeim er tilkynnt um. Hvað gerist á þessum þremur mánuðum? 
  • Hvers konar aðstoð getur barnaverndarþjónusta veitt börnum? 
Button Text