Samþykki
Dýpkum þekkinguna: Örugg í skólanum
Vinnið verkefnin saman í pörum, hópum eða lesið sjálf textann sem bent er á. Ræðið spurningarnar og skráið niður svörin ykkar. Berið síðan svörin saman við aðra hópa sem ræddu það sama.
Lesið á vef Stígamóta um það hvað er samþykki.
Verkefni 1
Hjálpist að við að svara spurningunum:
- Hvað er átt við með hugtakinu samþykki?
- Hvaða afleiðingar gæti það haft að stunda kynlíf án samþykkis?
- Samþykki er hægt er að afturkalla á hvaða tímapunkti sem er, hvort sem það er tjáð með orðum eða líkamstjáningu. Hvers konar líkamstjáningu gæti viðkomandi sýnt til að draga til baka samþykki sitt?
- Hvað finnst ykkur um að sum ungmenni suði um kynlíf þar til viðkomandi samþykkir? Er það samþykki?
Verkefni 2
Búið saman til auglýsingaherferð:
- Búið til slagorð fyrir auglýsingaherferð sem mun snúast um samþykki.
- Rökstyðjið slagorðið . Af hverju heldurðu að einmitt þetta sé mikilvægt í svona herferð
Mýtur og staðreyndir um kynlíf
Vinnið verkefnið saman í pörum, hópum eða lesið sjálf textann sem bent er á. Ræðið spurningarnar og skráið niður svörin ykkar. Berið síðan svörin saman við aðra hópa sem ræddu það sama.
Verkefni 1
Vinnið saman í pörum, hópum eða lesið sjálf textann sem bent er á. Ræðið spurningarnar og skráið niður svörin ykkar. Munið að þið eigið öll rétt á að segja ykkar skoðun og engin ein skoðun er rétt. Veljið ykkur einhvern sem stýrir umræðum þannig að öll komist að.
Lesið greinina Mýtur og staðreyndir um kynlíf á vef Stígamóta.
Ræðið þessar fullyrðingar. Er þetta rétt eða rangt?
- Stelpur vilja ekki stunda kynlíf og eiga ekki frumkvæði að kynlífi.
- Strákar eru alltaf til í tuskið, annars er eitthvað að.
- Allar stelpur eru með píkur, allir strákar með typpi og það eru bara til þessir tveir hópar fólks.
- Þú þarft að stunda typpi-í-píku-kynlíf til að missa meydóminn/sveindóminn.
- Fyrsta skiptið mun verða vont – og jafnvel í nokkur skipti eftir á.
- Kynlíf er eins og klám. Þú verður að stynja hátt, fara í ýktar stellingar, raka kynfærin og líta út eins og klámstjarna til að vera aðlaðandi.
- Fatlað fólk hefur ekki kynhvöt.
- Ef þú ert í sambandi áttu alltaf að vera til í kynlíf, annars elskarðu ekki hina manneskjuna.
- Fólk í sambandi stundar ekki sjálfsfróun.
- Þegar þú byrjar að stunda kynlíf máttu ekki segja stopp.
- Allir eru að gera það – og eiga að vilja gera það.
- Hvað gæti verið mikilvægt að hugsa um áður en þú stundar kynlíf í fyrsta skipti?
- Er löglegt að stunda kynlíf áður en þú verður 15 ára? Útskýrðu svarið nánar.
Verkefni 2
Kynferðislegur lágmarksaldur á Íslandi er 15 ár. Umræður hafa verið meðal þingmanna um að hækka þann aldur í 18 ár.
Ræðið.
- Hvað finnst ykkur um að kynferðislegur lágmarksaldur sé 15 ár? Hvaða rök eru með þeim aldri? Eru einhver rök á móti?
- Væri til bóta að hækka þennan aldur upp í 18 ár eins og umræður eru um í samfélaginu?
Réttindi til kynheilbrigðis
Til að vernda kynferðisleg réttindi annarra hefur þú líka nokkrar kynferðislegar skyldur. Þér ber skylda til að virða mörk annarra fyrir kynferðislegri nánd. Þú þarft alltaf að fá samþykki ef þig langar að snerta eða gera eitthvað kynferðislegt með annarri manneskju. Þetta þýðir að þú getur ekki þvingað, þrýst á eða sannfært aðra um að gera eitthvað sem þeir vilja ekki gera.
Öll börn og ungmenni eiga að búa við réttindi sem tryggð eru í Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Öll börn og ungmenni eiga rétt á því að vera ekki mismunað t.d. út frá kynstofni, þjóðaruppruna, litarhætti, kyni, tungumáli, trúarbrögðum, pólitískum eða öðrum skoðunum, uppruna, búsetu, eignarstöðu, fæðingu, fötlun, aldri, þjóðerni, hjúskapar- og fjölskyldustöðu, kynhneigð, kynvitund, heilsu, fjárhagslegri- eða félagslegri stöðu eða annarri stöðu.
Heimild: Vefurinn Kynheilbrigði
Svarið þessum spurningum:
- Hvaða réttindi á vef Kynheilbrigðis sem vísað er í hér fyrir ofan finnst ykkur mikilvægust. Veljið þau 4 réttindi sem þar koma fram sem ykkur finnst mikilvægust og kynnið fyrir öðrum í bekknum.
- Geti þið komið ykkur saman um hvaða réttindi eru mikilvægust sem talin eru upp á síðunni?
