Skip to main content

Dýpkum þekkinguna: Örugg í skólanum

Tryggt og öruggt skólaumhverfi

Verkefni 1

Barnasáttmálinn segir að öll börn eigi rétt á að tjá skoðanir sínar og skoðanir þeirra verði að taka alvarlega. Skólanum ber skylda til að stuðla að góðri þátttöku nemenda í skólanum og stuðla að því að nemendum sé búið gott nemendalýðræði. Þetta þýðir að allir nemendur skólans verða að láta í sér heyra og fá að hafa áhrif á daglegt líf í skólanum. 

Vinnið saman í pörum, hópum eða lesið sjálf textann sem bent er á.  Ræðið spurningarnar og skráið svörin ykkar. Berið síðan svörin saman við aðra hópa sem ræddu það sama.  

  • Eru þið sammála því að mikilvægt sé að nemendur fái að segja sitt í skólanum?
    • Hvers vegna/hvers vegna ekki? 
  • Í hvaða málum finnst ykkur rödd nemenda sérstaklega mikilvæg? Rökstyðjið svör ykkar. 
  • Hvernig teljið þið best að hlusta eftir röddum og áliti nemenda sem t.d. tala ekki íslensku, eru mjög feimnir eða eiga erfitt með að tjá sig upphátt? 
  • Hvaða leiðir hafið þið sem nemendur í skólanum ykkar til að tjá skoðanir ykkar í tímum, meðal annarra nemenda, við skólastjórnendur eða aðra? 
  • Finnst ykkur hlustað á nemendur og þeir hafa raunveruleg áhrif í skólanum ykkar? Rökstyðjið svarið ykkar.
    • Ef nei: Hvernig getur skólinn ykkar bætt sig í því að auðvelda að skoðanir nemenda heyrist? Skrifið að minnsta kosti þrjár tillögur. 

Verkefni 2

Hluti 1

Í fræðslulögum segir að allir nemendur eigi rétt á öruggu og góðu skólaumhverfi sem stuðlar að heilbrigði, vellíðan og aðstöðu til náms. Aðalatriðið í þessum lögum er að það ert ÞÚ sjálf/ur sem metur hvort þér líði vel eða ekki. Það þýðir að þegar nemandi segir frá því að hann upplifi sig ekki öruggan í skólanum eða að nemandanum finnist hann vera lagður í einelti ber skólanum skylda til að skoða málið og finna viðunandi úrræði í bekknum og í skólanum.

Hvað finnst ykkur mikilvægt til að skapa öruggt og gott umhverfi í skólanum? Er það eitthvað sem eflir heilsu, vellíðan og nám í skólanum? Ræðið í hóp eða svarið hvert fyrir sig. Eftir að hópurinn hefur rætt þessar spurningar skuluð þið bera ykkur saman við aðra hópa sem ræddu það sama. 

Það getur verið gott að hugsa um: 

  • Hvað einkennir öruggt og gott skólaumhverfi? 
  • Hvað getur hver og einn nemandi gert til að skapa gott skólaumhverfi? 
  • Hvað getur bekkurinn gert? 
  • Hvað getur nemendaráð gert? 
  • Hvað geta fullorðnir í skólanum gert? Kennarar, skólastjóri, hjúkrunarfræðingur, aðrir? 
  • Hvað getur fullorðna fólkið heima gert? 
  • Við hvern er best að tala ef nemanda líður ekki vel í skólanum? 
  • Hvaða fullorðnu manneskju treystir þú best í þínum skóla? 

Hluti 2

Hvað er mikilvægt að sé til staðar til að búa til gott skólaumhverfi?
Veljið sjálf eða sem hópur hvort þið viljið fjalla um nokkur málefni eða hvort þið viljið skrifa um eitt málefni sem þið teljið sérstaklega mikilvægt fyrir gott skólaumhverfi. Hægt er að skrá niður á lista þau atriði sem hópurinn velur, skil
 myndbandi eða hlaðvarpi með ykkar tillögum sem þið gætuð svo kynnt fyrir bekknum.
 


Verkefni 3

Nemendaráð og nemendalýðræði geta verið mikilvæg fyrir góðan skólabrag og stuðlar að góðri heilsu, vellíðan og námi. 

  • Á hvaða hátt telur þú að nemendaráð geti lagt sitt af mörkum til að skapa gott skólaumhverfi? 
  • Hvernig getur nemendaráð skapað gott nemendalýðræði meðal nemenda í skólanum? 
Button Text

Hvað er einelti?

Verkefni 1

Vinnið saman í pörum, hópum eða lesið sjálf textann sem bent er á.  Ræðið spurningarnar og skráið niður svörin ykkar. Berið síðan svörin saman við aðra hópa sem ræddu það sama.  

Í greininni Dulið einelti eru nefnd nokkur dæmi um stafrænt og dulið einelti. 

Á vef Barnaheilla má líka lesa um dulið einelti í greininni Hvað er einelti?  

  • Reynið að útskýra með eigin orðum hvað dulið einelti er. 
  • Dettur ykkur í hug annars konar dulið einelti en það sem nefnt er í greininni? 
  • Hvernig getur dulið einelti sem á sér stað á netinu haft áhrif á líðan nemenda í skólanum? 
  • Hvaða munur er á einelti sem á sér stað í raunveruleikanum og því sem á sér stað á netinu? 
  • Hvaða áhrif getur einelti haft á þann sem fyrir því verður? 
  • Hvernig líður þeim sem verður fyrir einelti.  
  • Hvað getið þið gert ef þið upplifið einelti?  
  • Við hvern er best að tala ef nemanda líður ekki vel í skólanum? 
  • Hvaða fullorðnu manneskju treystir þú best í þínum skóla? 

Verkefni 2

Stundum getur verið auðveldara að spjalla við annað fólk nafnlaust á netinu en augliti til auglitis.

  • Hver gæti verið ástæðan fyrir því að einhver vill spjalla við annað fólk nafnlaust á netinu?
  • Eru til einhverjar aðstæður þar sem það er jákvætt að þú getir verið nafnlaus á netinu? Rökstuddu svar þitt og nefndu dæmi um slíkar aðstæður.
Button Text

Að biðja um hjálp

Verkefni 1

Það er alltaf betra að segja öðrum frá hvernig þér líður. Hér eru upplýsingar um ýmis úrræði sem eru til staðar ef þig vantar ráðgjöf. Það getur bæði verið vegna þín eða einhvers sem þú þekkir. Það skiptir ekki máli hversu langt er síðan ofbeldið átti sér stað. Þú getur alltaf fengið hjálp. Á þessum þremur síðum sem hér er bent á er hægt að fá hjálp og lesa um hvaða úrræði eru í boði.

Á síðu Neyðarlínunnar er bent á úrræði sem eru í boði fyrir þolendur ofbeldis.  

1. Sjúkt spjall

Sjúkt spjall er nafnlaust netspjall fyrir ungmenni til að ræða áhyggjur af samböndum sínum, samskiptum eða ofbeldi. Spjallið er fyrir ungmenni yngri en 20 ára af öllum kynjum. Spjallið opnarðu með því að smella á græna hringinn niðri í hægra horninu. 

Hvernig virkar sjúkt spjall?

Á spjallinu talar þú við Sjúkást ráðgjafa sem eru þjálfaðir af Stígamótum og geta veitt aðstoð, stuðning og upplýsingar um ýmislegt sem tengist samskiptum og ofbeldi. Þú kemur inn á spjallið á eigin forsendum og þarft ekki að gefa upp nafn eða aðrar persónuupplýsingar. 

Það skiptir ekki máli hvort ofbeldið eða óheilbrigðu samskiptin áttu sér stað nýlega eða fyrir löngu síðan – við erum hér til að spjalla við þig. Markmiðið er að hjálpa þér að skilja hvað gerðist, að þér líði betur og þú fáir stuðning við að taka næstu skref. 

Listinn hér að ofan er að sjálfsögðu ekki tæmandi! 

Spjallið er alveg nafnlaust og þú mátt spyrja um hvað sem er. Engin spurning eða pæling er heimskuleg. Við erum alltaf til í að hlusta, styðja og hjálpa. Á þessari síðu kemst þú inn á netspjallið neðst til hægri.

2. Heilsuvera

Greinin heitir Fáðu hjálp gegn einelti.

3. Verkefni

  • Nefndu þrjár af þeim hjálparþjónustum sem nefndar eru á þessum vefsíðum sem Neyðarlínan og Heilsuvera benda á og lýstu þeim. 
  • Af hverju heldurðu að það geti verið auðveldara fyrir sumt fólk að tala við einhvern sem það þekkir ekki ef því líður illa? 
  • Hver gæti verið ástæðan fyrir því að erfitt er að tjá sig ef þú verður fyrir einelti? Skrifaðu smá grein, gerðu podkast eða myndband þar sem þú veltir spurningunni fyrir þér. 

Ímyndaðu þér að þú þekkir einhvern sem verður fyrir einelti en þorir ekki að tala um það við neinn. Skrifaðu niður þrjú ráð sem þú myndir gefa einhverjum í slíkum aðstæðum. 


Verkefni 2

Vinnið saman í pörum, hópum eða lesið sjálf textann sem bent er á.  Ræðið spurningarnar og skráið niður svörin ykkar. Berið síðan svörin saman við aðra hópa sem ræddu það sama.  

Lesið samantekt á vefnum Áttavitinn um einelti.  Þar er grein sem heitir:  Hvað er einelti?   

  • Hvað segir á síðunni að sé einelti? 
  • Hverjir verða fyrir einelti? 
  • Hverjar geta verið afleiðingar eineltis á einstaklinga? 
  • Hvað getið þið gert ef þið eruð lögð í einelti? 
  • Hvað getið þið gert ef þið sjáið aðra lagða í einelti? 

Ímyndið ykkur að þið þekkið einhvern sem þið vitið að hefur lagt aðra í einelti og sem á erfitt með að segja hætta því og biðjast fyrirgefningar – eða sem þorir ekki að tala um það við neinn. Skrifið þrjú ráð sem þið mynduð gefa einhverjum í slíkum aðstæðum. 

Hvað merkir þessi setning? 

Illska nær að þrífast þegar gott fólk gerir ekki neitt. 


Verkefni 3 

Nemendum sem gengur ekki vel í skólanum á rétt á að fá aðstoð frá kennurum, skólastjórum, skólahjúkrunarfræðingum og öðrum sem starfa við skólann. Það sem skiptir meginmáli er að „þú veist best hvort þér líður vel eða illa“ (Réttur þinn til að hafa það gott). 

Hjálpist að við að gera frétt, ritgerð, hljóðvarp, myndband eða kynningu þar sem þið veltið fyrir ykkur þessum rétti. 

  • Hvað finnst þér að ætti að gera fyrir nemendur sem biðja um aðstoð?     
Button Text