Stjórnsemi og eftirlit
Dýpkum þekkinguna: Mörk
Öll upplifum við afbrýðisemi einhvern tímann á lífsleiðinni. Afbrýðisemi er eðlileg tilfinning og hluti af rófi mannlegra tilfinninga. Hún getur birst á mismunandi hátt við mismunandi aðstæður – þú getur fundið fyrir afbrýðisemi í garð fjölskyldumeðlima, systkina, vina, aðila úr skólanum þínum, íþróttafélaginu, og í parasambandi.
Verkefni 1
Vinnið saman í pörum, hópum eða lesið sjálf textann sem bent er á. Ræðið spurningarnar og skráið niður svörin ykkar. Munið að þið eigið öll rétt á að segja ykkar skoðun og engin ein skoðun er rétt. Veljið ykkur einhvern sem stýrir umræðum þannig að öll komist að.
Ræðið fullyrðingarnar:
- Það er eðlilegt að besti vinur þinn eða elskhugi deili lykilorðinu sínu með þér.
- Ef þið eruð elskendur eða nánir vinir eigi þið rétt á að lesa skilaboð hvers annars.
- Það er allt í lagi að kærasti eða vinur ákveði fyrir þig hverju þú deilir á samfélagsmiðlum.
- Elskhugar og nánir vinir mega ákveða hvaða vini þú mátt eiga og hverjum þú fylgir á samfélagsmiðlum.
- Ef þú ert elskhugi eða náinn vinur átt þú rétt á að vita ALLTAF hvar hinn aðilinn er.
- Það er eðlilegt að elskhugi ákveði í hvernig fötum þú ert.
Lesið á vef Stígamóta um afbrýðisemi
Afbrýðisemi er stundum notuð sem stjórnunartæki í samböndum, til að stýra klæðnaði og útliti, hegðun og samskiptum hins aðilans. Slík stjórnun er ofbeldi sem getur skaðað hina manneskjuna. Taktu ábyrgð á eigin afbrýðisemi og leystu úr henni á farsælan máta. Leitaðu þér hjálpar ef þú átt í erfiðleikum með að takast á við þessar tilfinningar.
Hér fyrir neðan er stutt myndband úr Sjúkást herferðinni 2018 sem sýnir dæmi um það hvernig afbrýðissemi getur birst:
Verkefni 2
Á vef Neyðarlínunar getur þú lesið um stafrænt ofbeldi. Einnig getið þið lesið á vef Stígamóta um það hvað er stafrænt ofbeldi.
Vinnið saman í pörum, hópum eða lesið sjálf textann sem bent er á. Ræðið spurningarnar og skráið niður svörin ykkar. Munið að þið eigið öll rétt á að segja ykkar skoðun og engin ein skoðun er rétt. Veljið ykkur einhvern sem stýrir umræðum þannig að öll komist að.
- Á þessum síðum er fjöldi skýringa á því hvað er stafrænt ofbeldi. Eru einhver dæmi sem nefnd eru sem þið eruð hissa á að teljist ofbeldi? Skrifið að minnsta kosti eina málsgrein þar sem þið veltið þessu fyrir ykkur.
- Veljið saman þrjú atriði úr greinunum eða fleiri sem gætu verið góð ráð fyrir þann sem verður fyrir stafrænu ofbeldi? Skrifið að minnsta kosti eina setningu með hverjum punkti.
Verkefni 3
Á vef Neyðarlínunnar geti þið lesið um stafrænt ofbeldi. Einnig getið þið lesið á vef Stígamóta um það hvað er stafrænt ofbeldi.
Vinnið saman í pörum, hópum eða lesið sjálf textann sem bent er á. Ræðið spurningarnar og skráið niður svörin ykkar. Munið að þið eigið öll rétt á að segja ykkar skoðun og engin ein skoðun er rétt. Veljið ykkur einhvern sem stýrir umræðum þannig að öll komist að.
- Margir sem verða fyrir stafrænu ofbeldi eiga erfitt með að segja öðrum frá því. Hverjar gætu verið ástæður þess?
- Takið saman góð ráð sem þið gætuð gefið einhverjum sem verður fyrir stafrænu ofbeldi en vill ekki tala um það.
Að virða ekki mörk annarra
Verkefni 1
Lesið á vef Stígamóta um það hvað er samþykki og á vef Umboðsmanns barna um kynferðislegan lágmarksaldur.
Vinnið saman í pörum, hópum eða lesið sjálf textann sem bent er á. Ræðið spurningarnar og skráið niður svörin ykkar. Munið að þið eigið öll rétt á að segja ykkar skoðun og engin ein skoðun er rétt. Veljið ykkur einhvern sem stýrir umræðum þannig að öll komist að.
- Hvað þýðir það að biðja um samþykki kynlífi?
- Af hverju er mikilvægt að gefa og fá samþykki áður en þú stundar kynlíf?
- Af hverju getur það verið erfitt ef suðað er um kynlíf? Veltu fyrir þér hvaða afleiðingar það getur haft ef einhver venur sig á að suða um kynlíf.
- Hvað þýðir það að við höfum kynferðislegan lágmarksaldur á Íslandi? Af hverju heldurðu að við höfum kynferðislegan lágmarksaldur?
Verkefni 2
Vinnið saman í pörum, hópum eða lesið sjálf textann sem bent er á. Ræðið spurningarnar og skráið niður svörin ykkar. Munið að þið eigið öll rétt á að segja ykkar skoðun og engin ein skoðun er rétt. Veljið ykkur einhvern sem stýrir umræðum þannig að öll komist að.
Ræðið þessar fullyrðingar:
- Þú þarft ekki að biðja um samþykki til að stunda kynlíf þegar þú ert að deita.
- Þegar þú ert ástfanginn geturðu krafist þess eða búist við því að hin manneskjan hjálpi þér að prófa mismunandi kynferðislega hluti.
- Það er ekki í lagi að stunda kynlíf – eða reyna að stunda kynlíf með einhverjum sem vill það ekki. En ef þú ert sjálfur fullur/ölvaður þá er það afsökun.
- Þegar þú ert að deita geturðu búist við því að hin manneskjan vilji deila nektarmyndum með þér.
Verkefni 3
Lesið greinina Kynferðisofbeldi á vef Stígamóta.
Vinnið saman í pörum, hópum eða lesið sjálf textann sem bent er á. Ræðið spurningarnar og skráið niður svörin ykkar. Munið að þið eigið öll rétt á að segja ykkar skoðun og engin ein skoðun er rétt. Veljið ykkur einhvern sem stýrir umræðum þannig að öll komist að.
- Á listanum eru mörg dæmi um kynferðisofbeldi. Eru einhver dæmi nefnd sem þið eruð hissa á að geti talist ofbeldi?
- Kynferðisleg áreitni er líka útskýrð á þessari síðu. Eru einhver dæmi nefnd sem þið eruð hissa á að geti talist kynferðisleg áreitni?
- Hvað gæti verið gott ráð fyrir þann sem upplifir eitthvað af því sem nefnt er á listanum? Hjálpast að við að skrá niður ráð sem þú gætir gefið einhverjum sem lendir í kynferðisofbeldi, en vill ekki segja frá því.
Verkefni 4
Hjálpist að við að gera fræðslu sem fjallar um eitthvað sem ykkur finnst mikilvægt í tengslum við mörk í kynlífi. Þið getið t.d. notað fyrirsögnina „Virðing fyrir mörkum.
Hægt væri að gera:
- Kynningu
- Hlaðvarp
- Myndband
- Fréttagrein
- Leikþáttur
- annað
