Skip to main content

Að fá hjálp vegna eineltis

Hvernig er hægt að stöðva einelti?

Einelti er endurtekið ofbeldi, líkamlegt eða andlegt, þar sem einn eða fleiri níðast á einstaklingi sem á erfitt með að verjast. Til að geta stöðvað einelti er mikilvægt að þekkja vísbendingarnar.

 

Birtingarmyndir eineltis

Barn sem er lagt í einelti líður illa og finnur til varnarleysis. Algengt er að barnið vill ekki segja frá því sem gerist svo það hljóti ekki verra af. Einelti fer oft fram þar sem enginn sér. Það er mjög áríðandi að við öll þekkjum einkenni eineltis.

Einelti birtist í mörgum myndum, það getur verið:

  • Líkamlegt. Barsmíðar, spörk, hrindingar.
  • Munnlegt. Uppnefni, niðrandi athugasemdir, endurtekin stríðni.
  • Skriflegt. Neikvæð skilaboð á netinu eða síma, krot, bréfasendingar.
  • Óbeint. Baktal, útskúfun, útilokun úr vinahópi.
  • Efnislegt. Hlutum stolið eða þeir skemmdir.
  • Andlegt. Þvingun til að gera eitthvað gegn vilja sínum.

Vísbendingar um einelti

Breytt hegðun og líðan barns geta verið vísbendingar um að það sé lagt í einelti. Upptalningin hér að neðan er ekki tæmandi.

Tilfinningalegar

  • Breytingar á skapi.
  • Endurtekinn grátur og viðkvæmni.
  • Svefntruflanir eða martraðir.
  • Breyttar matarvenjur, lystarleysi eða ofát.
  • Lítið sjálfstraust, hræðsla og kvíði.
  • Depurð, þunglyndiseinkenni eða sjálfsvígshugsanir.

Líkamlegar

  • Líkamlegar kvartanir, til dæmis höfuðverkur eða magaverkur.
  • Kvíðaeinkenni, eins og að naga neglur, stama eða ýmis konar kækir.
  • Skrámur eða marblettir sem barnið getur ekki útskýrt.
  • Rifin föt eða skemmdar eigur.

Félagslegar

  • Barnið virðist einangrað og einmana.
  • Barnið fer ekki í og fær ekki heimsóknir.
  • Barnið vill ekki taka þátt í félagsstarfi og á fáa eða enga vini.

Hegðun

  • Óútskýranleg skapofsaköst eða grátköst.
  • Barnið neitar að segja frá hvað amar að.
  • Árásargirni og erfið hegðun.

Í skóla

  • Barnið hræðist að fara eitt í og úr skóla, biður um fylgd eða fer aðra leið.
  • Barnið leggur fyrr eða seinna af stað í skólann en venjulega.
  • Barnið mætir oft seint eða byrjar að skrópa.
  • Barnið forðast ákveðnar aðstæður í skólanum, til dæmis leikfimi og sund.
  • Barnið hættir að sinna náminu, einkunnir lækka, erfiðleikar með einbeitingu.
  • Barnið einangrar sig frá skólafélögum.
  • Barnið forðast að fara í frímínútur.

 

Ef grunur er um að einelti eigi sér stað

Ef þú tekur eftir einhverjum af þessum einkennum eða einhverju öðru sem bendir til að barni líði illa, er mikilvægt að kanna málið og láta viðeigandi aðila vita. Það geta verið foreldrar, kennarar, þjálfarar, stjórnendur skóla eða annað starfsfólk skólans. Ef þér finnst þú ekki fá næga aðstoð í skólanum geturðu sent beiðni til Fagráð eineltismála í grunn- og framhaldsskólum. Ef einelti á sér stað innan íþrótta- og æskulýðsstarfs er hægt að leita til Samskiptaráðgjafa. Alvarlegt einelti á að tilkynna til barnaverndar gegnum 112.

Heimild: Neyðarlínan 112

Neteinelti

Neteinelti er yfirleitt skilgreint sem neikvætt áreiti af ásettu ráði af höndum eins aðila eða hóps á rafrænu formi gagnvart einstaklingi sem getur ekki auðveldlega varið sig. Um er að ræða áreiti sem getur falið í sér valdaójafnvægi og misbeitingu á valdi í gegnum hvers konar upplýsinga- og samskiptatækni.

Rannsóknir hafa sýnt að ungt fólk notar netið í allt að 40 klukkustundir á viku og að allt að 92% barna fari á netið á hverjum degi. Vegna þessa eru þau berskjölduð gagnvart neteinelti og er mikilvægt að leita leiða til þess að sporna gegn því. Afleiðingar af neteinelti geta verið alvarlegar, jafnt fyrir þolendur, gerendur og samfélagið í heild.

Hér er hægt að lesa fleiri staðreyndir um neteinelti, birtingarmyndir þess, og afleiðingar svo eitthvað sé nefnt.

Hvað get ég gert? Ég er þolandi neteineltis

Ef þú ert þolandi neteineltis er mikilvægt fyrir þig að greina frá eineltinu og fá aðstoð með að stoppa það og vinna úr afleiðingum þess.

Þú getur greint fullorðnum einstaklingum frá neteineltinu og þeir munu aðstoða þig með næstu skref. Það geta verið foreldrar/forsjáraðilar, kennarar eða starfsfólk í frítímatengdu starfi, eins og til dæmis þjálfari eða frístundaleiðbeinandi. Það er mikilvægt að þú leitir til einhvers sem þú treystir.

Ég er gerandi neteineltis

Neteinelti hefur líka neikvæð áhrif á gerendur. Áhrifin af því að leggja aðra í einelti geta fylgt einstaklingum fram á fullorðinsárin.

Ef þú ert gerandi eineltis er mikilvægt að þú leitir þér aðstoðar sem fyrst. Þú getur greint fullorðnum einstaklingum frá neteineltinu og þeir munu aðstoða þig með næstu skref. Það geta verið foreldrar/forsjáraðilar, kennarar eða starfsfólk í frítímatengdu starfi, eins og til dæmis þjálfari eða frístundaleiðbeinandi. Það er mikilvægt að þú leitir til einhvers sem þú treystir.

Neyðarlínan – Ef þú ert í hættu – hringdu þá strax í 112.

Rauði krossinn – Hjálparsími Rauða krossins er 1717. Nánari upplýsingar og netspjall er á 1717.is

Bergið – Bergið er stuðnings- og ráðgjafasetur fyrir ungt fólk upp að 25 ára aldri. Nánar á bergid.is

Píeta samtökin – Píeta samtökin sinna forvarnarstarfi gegn sjálfsvígum og sjálfsskaða. Boðið er upp á viðtöl fyrir 18 ára og eldri. Nánar á pieta.is

Horfðu á myndbandið: Hvernig hagar þú þér á netinu?

Hvað er það að kenna okkur í samskiptum okkar við aðra?

Heimilld: Æskulýðsvettvangurinn