Góð ráð varðandi Dimmisjón
Grein tekin af vefnum Áttavitinn
Besta ráðið er auðvitað að sleppa því að drekka áfengi! En við hjá Áttavitanum erum ekki fædd í gær og vitum hvernig megnið af útskriftar nemum háttar sér á þessum degi
Vertu vel sofin(n) og stemmd(ur)
Dimmiteringardagurinn getur verið langur og strangur, oftar en ekki hefst gleðin árla að degi og getur varað langt fram á nótt ef vel tekst til. Því er það líklega sniðugt að vera vel úthvíld(ur) og fersk(ur) þegar lagt er af stað í ævintýrið. Passaðu þig að borða vel yfir daginn, fáðu þér hollan og góðan morgunmat áður en lagt er af stað og borðaðu svo vel yfir daginn.
Gakktu hægt um gleðinnar dyr
Þar sem dimmiteringar hefjast snemma að morgni og standa venjulega langt fram á kvöld er nauðsynlegt að fara hægt af stað og leyfa spennunni ekki að ná tökum á sér. Fátt getur reynst leiðinlegra en að hafa eytt löngum tíma í undirbúning á deginum og að enda hann svo fyrir kvöldmat, sofnaður af ofneyslu áfengis Ef þú kýst að drekka áfengi í þinni dimmisjón þá eru það sérleg meðmæli Áttavitans að drekka 1 vatnsglas milli áfengra drykkja til að jafna út áfengið með vatni til að halda rænu og fjörinu gangandi sem lengst.
Gerðu áætlanir fram í tímann
Að dimmitera getur krafist nokkurs undirbúnings, -ekki þarf einungis að redda sér búningi í samráði við önnur útskriftarefni, að fara í ríkið og gera ráðstafanir vegna vinnu eða annarra skyldna. Það getur kostað nokkuð að dimmitera með öllu tilheyrandi og því er ráð að ráðstafa fyrirfram fjármagni til herlegheitanna. Það er alltaf meiri stemning í því að vera með hópnum og að geta tekið þátt í því sem hefur verið skipulagt af nefndinni sem oftar en ekki sér um að skipuleggja daginn.
Að sníða sér stakk eftir vexti
Veður setur oftar en ekki líf okkar á íslandi í skorður og eru dimmiteringar engin undantekning frá þeirri reglu. Því getur það reynst góð regla að miða búning hvers skiptis við veðufar. Að manni verði ekki of heitt eða kalt getur skipt sköpum um það hvernig dagurinn fer og hversu vel maður skemmtir sér.
Gættu náungans
Sniðugt er að reyna að halda hópinn yfir daginn, það skapar stuðningsnet sem getur skipt sköpum þegar lagt er í slíka svaðilför. Hafið auga með hvort öðru og sjáið til þess að það skemmti sér allir vel og lengi.
Heimild: Áttavitinn
