Skip to main content

Upplifir þú ofbeldi heima?

Vanræksla á barni

Það er vanræksla þegar barn fær ekki þá umönnun og aðbúnað sem því er nauðsynlegt og getur skaðað þroska þess.

 

Öllum er skylt að tilkynna til barnaverndarnefndar ef þeir hafa ástæðu til að ætla að barn búi við óviðunandi uppeldisaðstæður.

Barnaverndarlög 16. grein a.

Vanræksla

Vanræksla á barni er þegar það er ekki hugsað nógu vel um barnið þannig að skaði getur orðið á þroska þess. Vanræksla getur hafist strax í móðurkviði. Almennt telst það ekki vanræksla þegar þörfum barns er stundum ekki sinnt nógu vel.

 

Vanræksla skiptist í eftirfarandi fjóra flokka.

Líkamleg vanræksla

  • Barn fær ekki nauðsynlega heilbrigðisþjónustu.
  • Barn fær ekki mat eða föt við hæfi.
  • Hreinlæti barns er ekki fullnægjandi.
  • Húsnæði er ekki íbúðarhæft.

Vanræksla við umsjón og eftirlit

  • Barn er skilið eftir eitt og eftirlitslaust án þess að hafa til þess aldur eða þroska.
  • Barn er skilið eftir hjá óhæfum einstaklingi.
  • Barn er skilið eftir hjá einhverjum óeðlilega lengi.
  • Barn er ekki verndað og jafnvel í hættu vegna annarlegs ástands foreldris vegna áfengis- eða vímuefnaneyslu.

Vanræksla við nám

  • Barn kemur endurtekið í skólann án nauðsynlegra áhalda eða fatnaðar, og ábendingar til foreldra bera engan árangur.
  • Barn mætir illa í skóla og foreldrar láta það afskiptalaust.
  • Barn er ekki skráð í skóla eða missir mikið úr skóla vegna ólögmætra ástæðna, til dæmis vegna pössunar á yngri systkini eða foreldri vaknar ekki.
  • Foreldrar sinna ekki ábendingum skóla um sérfræðiaðstoð fyrir barnið.

Tilfinningaleg vanræksla

  • Foreldri bregst seint eða ekki við, til dæmis þegar ungbarn grætur eða barn þarfnast stuðnings vegna áfalls.
  • Foreldri örvar ekki andlegan þroska barns, til dæmis með því að láta sem það heyri hvorki í barninu né sjái það.
  • Barn er ofverndað og fær litla hvatningu til að vera sjálfstætt, sem hefur áhrif á þroska þess.
  • Foreldri setur barni ekki eðlileg mörk og beitir því ekki aga.

 

Ef eitthvað af þessu á við þig eða einhvern sem þú þekkir getur þú haft samband við 112 eða spjallað á netspjallinu www.112.is

Aðstoð í boði er t.d.  að fá hjálp frá Barnavernd – Barnaheill eða Hjálparsíma Rauða krossins á 1717 og netspjall www.1717.is

 

Heimild: Neyðarlínan