Hvað er ofbeldi?

Öll börn eiga rétt á vernd gegn ofbeldi. Það er á ábyrgð fullorðinna að passa upp á það. Ef þú veist eða hefur grun um að barn sé beitt ofbeldi áttu að tilkynna það. Góð samskipti og fræðsla er góð undirstaða til að fyrirbyggja ofbeldi og stoppa það eins fljótt og hægt er.
Andlegt og líkamlegt ofbeldi gegn börnum
Ofbeldi gegn barni hefur alvarlegar afleiðingar langt fram á fullorðinsár. Það er alltaf mikilvægt að stöðva ofbeldið eins fljótt og hægt er og koma börnum til hjálpar. Hér er hægt að lesa meira um andlegt og líkamlegt ofbeldi gegn börnum.
Hvernig á að koma í veg fyrir kynferðisofbeldi gegn börnum?
Til að koma í veg fyrir kynferðisofbeldi gegn börnum þurfum við að vera vakandi fyrir merkjunum, fræða börn, hlusta og tilkynna ef grunur er um ofbeldi.
Hér er hægt að lesa meira um hvernig á að koma í veg fyrir kynferðisofbeldi gegn börnum.
Vanræksla á barni
Það er vanræksla þegar barn fær ekki þá umönnun og aðbúnað sem því er nauðsynlegt og getur skaðað þroska þess.
Hér getur þú lesið meira um vanrækslu á börnum.
Áhættuhegðun
Þegar barn hegðar sér á einhvern hátt sem skaðar eða er líklegt til að skaða heilsu þess og þroska kallast það áhættuhegðun. Til dæmis vímuefnaneysla, sjálfskaði, ofbeldi gagnvart öðrum og afbrot.
Hér er hægt að lesa meira um áhættuhegðun.
Hvernig er hægt að stöðva einelti?
Einelti er endurtekið ofbeldi, líkamlegt eða andlegt, þar sem einn eða fleiri níðast á einstaklingi sem á erfitt með að verjast. Til að geta stöðvað einelti er mikilvægt að þekkja vísbendingarnar.
Hér er hægt að lesa meira um hvernig hægt er að stöðva einelti.
Heimild: Neyðarlínan 112
