Hvað gerist ef barn hefur samband við barnaverndarþjónustu?

Barnavernd
Markmið barnaverndar er að styðja foreldra til að hugsa vel um börnin sín. Ef þú heldur að barn sé beitt ofbeldi eða búi við vanrækslu ættirðu að láta barnavernd vita.
Barnavernd tryggir vernd og umönnun barna
Öll undir 18 ára teljast börn, einnig ófædd börn. Ef þú heldur að barn sé beitt ofbeldi eða búi við vanrækslu ættirðu að láta barnavernd vita. Til dæmis ætti að tilkynna vanrækslu, slæma framkomu foreldra gagnvart barni, áreitni eða ofbeldi annarra gagnvart barni og áhættuhegðun barna. Ekki treysta á að aðrir láti vita. Það er líka mikilvægt að tilkynna aftur ef ástandið breytist ekki.
Markmið barnaverndar er fyrst og fremst að koma börnum og fjölskyldum til aðstoðar. Barnaverndarlög segja að aðstoða eigi börn sem búa við óviðunandi aðstæður eða börn sem stofna heilsu sinni og þroska í hættu. Það er gert með því að styrkja fjölskyldur í uppeldishlutverki sínu og vernda einstaka börn þegar það á við.
Barnavernd leggur áherslu á samvinnu við foreldra og börn. Velferð barnsins er alltaf í forgangi. Börn eru höfð í samráði – eftir því sem aldur þeirra og þroski leyfir.
Hvernig á að tilkynna
Þú getur tilkynnt til barnaverndar með því að hringja í 112 eða gegnum netspjall 112. Einnig er hægt er að hringja í þá barnaverndarþjónustu þar sem barnið býr. Fyrir börn í Reykjavík er hægt að senda tilkynningu á vefsíðu borgarinnar. Í sumum öðrum sveitarfélögum er líka hægt að tilkynna gegnum vef þeirra, til dæmis á Akureyri, Hafnarfirði, Kópavogi og Garðabæ.
Þú þarft að segja til nafns þegar þú tilkynnir en getur alltaf óskað eftir nafnleynd gagnvart öðrum en barnaverndinni.
Börn geta líka haft samband sjálf. Það er allt í lagi að tilkynna þótt maður sé ekki alveg viss. Mundu að börn eiga alltaf að njóta vafans.
Símanúmer 112
Listi yfir barnaverndarnefndir – Vefsíða Barna og fjölskyldustofu
Heimild: Neyðarlínan
