Hvernig svarar þú beiðnum um að senda öðrum nektarmyndir.
Svar við óviðeigandi skilaboðum um kynferðislega mynd
Hefur einhver dreift eða hótað að dreifa kynferðislegri mynd af þér? Hefurðu fengið typpamynd sem þú baðst ekki um? Hér eru hugmyndir að skilaboðum sem þú getur svarað með. Taktu skjáskot og hafðu við höndina.
Hvernig á að svara þegar einhver sendir eða biður um nektarmynd?
Hefur einhver sent þér kynferðislega mynd af sér sem þú baðst ekki um? Eða beðið þig um að senda kynferðislega mynd af þér en þig langar ekki til þess? Þetta getur verið mjög óþægilegt og erfitt að vita hvernig á að bregðast við.
Mundu bara að það er ekki við þig að sakast. Eitt af því sem þú getur gert er að láta einstaklinginn vita að þetta er stafrænt kynferðisofbeldi og getur verið ólöglegt.
Ertu undir 18 ára?
- Að senda nektarmynd til einhvers undir 15 ára er ólöglegt.
- Að óska eftir nektarmynd frá manneskju undir 18 ára er ólöglegt.
Heimild: Neyðarlínan

