Skip to main content

Hefur þú beitt einhvern kynferðislegu ofbeldi?

Að hætta að beita ofbeldi

Ástæður fyrir því af hverju fólk beitir ofbeldi geta verið margvíslegar. Það er hægt að fá hjálp til að breyta hegðun sinni og koma í veg fyrir beitingu ofbeldis.

Að læra að takast á við ágreining

Oft er ágreiningur eða rifrildi undanfari ofbeldis. Lífið er fullt af óvæntum uppákomum og yfirþyrmandi verkefnum sem geta valdið deilum sem við stjórnum ekki. Við getum hins vegar stjórnað því hvernig við bregðumst við þegar ágreiningur kemur upp.

Ef við finnum að ágreiningur er að valda okkur vanlíðan þá er gott fyrsta skref að anda djúpt og telja upp að 10 áður en við bregðumst við.

Ráð til að bæta samskipti

Árásargirni

Í mikilli vanlíðan getur komið upp árásargirni, sem felst í því að vilja ráðast á aðilann sem er tengdur vanlíðaninni. Árásargirni er varnarviðbragð. Algengt er að hún gjósi upp þegar fólk verður ráðþrota og vill ná valdi á stöðunni. Að baki geta legið margs konar sterkar tilfinningar. Með því að ná stjórn á árásargirninni náum við valdi á ofbeldinu.

Hér eru mikilvæg skref til að ná stjórn á árásargirni:

1. Þekkja einkennin og hvað kemur henni af stað

Þegar árásargirni rýkur upp gerist margt í líkamanum: vöðvar spennast og blóðþrýstingur og púls hækkar. Öll viðbrögð verða kraftmeiri. En það sem mestu máli skiptir er að hæfileikinn til að hugsa og skilja minnkar og öll athyglin beinist að því eða þeim sem okkur finnst að hafi látið okkur líða illa.

2. Bregðast rétt við

Þegar við finnum að árásargirnin er að taka yfir höfum við tækifæri til að átta okkur á hvað er að gerast og stíga til baka. Við getum sest niður, lækkað málróminn og dregið andann djúpt. Við getum líka ákveðið að fara úr aðstæðunum. Árásargirni er eins og olía á eldinn, hún kallar fram sömu viðbrögð í öðrum og gerir illt verra. Þess vegna er mikilvægt að stoppa hana. Þetta hljómar einfalt en krefst mikillar æfingar.

3. Þegar við náum þessu ekki, taka ábyrgð og gera betur næst

Að læra að þekkja einkennin og breyta því hvernig við bregðumst við gerist ekki sjálfkrafa eða á einum degi. Það mun koma fyrir að við náum þessu ekki. Þegar storminn lægir getur verið auðveldast að láta eins og ekkert hafi gerst en þá viðhöldum við vítahringnum. Það krefst hugrekkis að viðurkenna hvað maður gerði og að horfast í augu við afleiðingarnar. Til að brjóta vítahringinn verðum við að taka ábyrgð.

Af hverju beitir fólk ofbeldi?

Ofbeldi er lærð hegðun. Sumir læra það í uppeldi sínu, aðrir frá umhverfinu, menningu eða valdaójafnvægi í kerfum samfélagsins. Utanaðkomandi áhrif eins og áfengi, vímuefni og stress geta ýtt undir ofbeldi en þau eru aldrei ástæðan. Það er alltaf val hvers og eins hvort hann beiti ofbeldi. 

Mögulegar ástæður ofbeldis

  • Til þess að stjórna hinum aðilanum, hvað hann gerir og hvernig honum líður.
  • Til að fá sínu framgengt.
  • Að finnast sínar tilfinningar og þarfir mikilvægari en annarra.
  • Ótti við að missa virðingu ef maður heldur ekki völdunum.
  • Trú á að um sé að ræða eðlilega hegðun.
  • Vankunnátta um aðrar leiðir til að takast á við reiði og vonbrigði.

Þó að finna megi mögulega ástæðu ofbeldis er það aldrei réttlætanlegt og er alltaf sök þess sem beitir því.

Það getur verið erfitt að aflæra þessa hegðun og breyta viðhorfi sínu. Til þess þarf fyrst og fremst vilja til að breytast og síðan að taka ábyrgð á eigin hegðun. Það getur verið gott að fá aðstoð frá sálfræðingi eða Heimilisfrið sem sérhæfa sig í meðferð fyrir þá sem beita ofbeldi í nánum samböndum.

 

Meðferð fyrir þau sem beita ofbeldi

Heimilisfriður býður upp á meðferð fyrir gerendur í heimilisofbeldi af öllum kynjum. Það eina sem þarf er vilji til að breyta ofbeldishegðun sinni og að taka á sínum málum. Boðið er upp á meðferð við hvers konar ofbeldshegðun, eins og andlegri, líkamlegri og kynferðislegri. Meðferðin byggir á einstaklingsviðtölum, einnig er boðið upp á makaviðtöl og parameðferð ef það á við.

Hér er hægt að horfa á myndband um meðferð fyrir þau sem beita ofbeldi.

 

 Heimild: Neyðarlínan