Skip to main content

Af hverju hjálpar það að tala við einhvern um ofbeldi?

Að tala við einhvern fullorðinn getur látið okkur líða betur. Að tala við einhvern fullorðinn
getur látið vondu hugsanirnar og erfiðu tilfinningarnar verða svolítið minni. Stundum vitum við ekki alveg hvers vegna okkur líður ekki vel. Það getur verið erfitt að vita hvað á að segja. Við getum sagt: „Mér líður illa og ég veit ekki af hverju.“ Ef við segjum frá getum við fengið hjálp til að komast að því hvernig okkur gæti liðið betur.
Stundum getur verið auðveldara að segja einhverjum sem við þekkjum ekki frá því hvernig okkur líður.

Þá er gott að vita að það er til fullorðið fólk sem vinnur við að tala við börn og reyna að sjá til þess að þeim líði vel. Allir geta hringt í 112, úr farsímum og úr símtækjum í almenna símkerfinu. Samband næst við 112 þótt ekki sé inneign á símakortinu og líka þótt ekkert símakort sé í símanum.
Þú getur líka notað netspjallið til að tala við fólkið sem vinnur hjá Neyðarlínunni. Sumum finnst auðveldara að skrifa en tala um það sem er erfitt. Þú finnur spjallið á www.112.is

Gott að vita:

  • Talaðu við einhvern sem þú treystir og getur leiðbeint þér
  • Það eru aðilar sem geta hjálpað þér, oft gott að treysta tilfinningunni og bera aðstæður undir aðra.
  • Með því að segja frá geturðu unnið úr sársaukanum og orðið sterkari en áður
  • Ábyrgðin er aldrei þín
  • Ofbeldið er aldrei þér að kenna
  • Til að ofbeldið haldi ekki áfram þarftu að segja einhverjum frá

Neyðarlínan 112 og netspjall www.112.is

Aðstoð vegna ofbeldis

Hér eru upplýsingar um ýmis úrræði sem eru til staðar ef þig vantar ráðgjöf. Það getur bæði verið vegna þín eða einhvers sem þú þekkir. Það skiptir ekki máli hversu langt er síðan ofbeldið átti sér stað. Þú getur alltaf fengið hjálp.

Leiðarvísir fyrir fólk sem hefur orðið fyrir kynferðisofbeldi

Þolendur geta fengið hjálp við að vinna úr áfallinu og kæra gerandann. Leiðarvísir 112 útskýrir hvað þú getur gert.

Heimild: Neyðarlínan