Skip to main content

Hefur þú upplifað kúgun á netinu?

Lesið á vef Neyðarlínunar greinina Ráð fyrir börn og unglinga. Greinin fjallar um að börn og unglingar lenda stundum í áreitni á netinu. Til dæmis að persónulegum eða kynferðislegum myndum sé deilt án leyfis eða að lenda í neteinelti.

Vinnið saman í pörum, hópum eða lesið sjálf textann sem bent er á.  Ræðið spurningarnar og skráið niður svörin ykkar. Munið að þið eigið öll rétt á að segja ykkar skoðun og engin ein skoðun er rétt. Veljið ykkur einhvern sem stýrir umræðum þannig að öll komist að.

  • Hver er ráðgjöf Neyðarlínunar til að vernda ykkur á netinu? Búið saman til stutt myndband eða upplýsingaplakat sem hjálpar til við að dreifa ráðleggingunum.
  • Hvað mælir Neyðarlínan með að gera ef þið verðið fyrir fjárkúgun á netinu? Ræðið saman um þau ráð.
  • Hvar geti þið fengið aðstoð ef þið lendið í fjárkúgun á netin?

Lesið einnig á vef Lögreglunnar greinina Aðgerðir á Instagram til að vernda ungmenni gegn kynlífskúgun .

Hvert getur þú leitað eftir hjálp?

  • Löggan
  • Neyðarlínan
  • Stígamót
  • Vinalínan 1717