Hvað eru réttindi til kynheilbrigðis?
Réttindi til kynheilbrigðis
Til að vernda kynferðisleg réttindi annarra hefur þú líka nokkrar kynferðislegar skyldur. Þér ber skylda til að virða mörk annarra fyrir kynferðislegri nánd. Þú þarft alltaf að fá samþykki ef þig langar að snerta eða gera eitthvað kynferðislegt með annarri manneskju. Þetta þýðir að þú getur ekki þvingað, þrýst á eða sannfært aðra um að gera eitthvað sem þeir vilja ekki gera.
Öll börn og ungmenni eiga að búa við réttindi sem tryggð eru í Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Öll börn og ungmenni eiga rétt á því að vera ekki mismunað t.d. út frá kynstofni, þjóðaruppruna, litarhætti, kyni, tungumáli, trúarbrögðum, pólitískum eða öðrum skoðunum, uppruna, búsetu, eignarstöðu, fæðingu, fötlun, aldri, þjóðerni, hjúskapar- og fjölskyldustöðu, kynhneigð, kynvitund, heilsu, fjárhagslegri- eða félagslegri stöðu eða annarri stöðu.
- Aðeins þú ræður yfir þínum líkama.
- Þú getur ekki ráðið yfir líkama einhvers annars.
- Öll getum við sagt nei við kynlífi, jafnvel ef þú átt í sambandi við einhvern.
- Þú hefur rétt á að vera ástfanginn af hverjum sem þú vilt.
Heimild: Vefurinn Kynheilbrigði

