Skip to main content

Að líða vel saman

Hvernig getur okkur liðið vel saman í leikskólanum? Og hvernig getum við orðið vinir aftur þegar við höfum rifist? Í hlutanum „Að líða vel saman“ fræðast börnin um hvernig við getum komið á góðum skólabrag í leikskólanum og hvernig við getum talað um það við aðra ef við upplifum eitthvað erfitt.
Að líða vel saman

Líkami minn tilheyrir mér

Öll börn eiga rétt á að ráða yfir eigin líkama. Og það eru ákveðnir hlutir sem fullorðnir ættu aldrei að gera við líkama barna. Verkefnin fjögur  í hlutanum „Líkami minn tilheyrir mér“ gefa í sameiningu góða innsýn í viðfangsefnin „líkami minn“, „mörk“ og „ofbeldi“ og hvernig við getum fengið hjálp ef þörf krefur.
Þú átt líkama þinn

Réttur til að vera örugg

Öll börn eiga rétt á því að  upplifa sig örugg, bæði heima og í leikskólanum. Í hlutanum „Réttur til að vera örugg“ kynnast krakkarnir Linju, sem er stundum hrædd við að fara heim. Við lærum um mismunandi gerðir af líkamlegu og andlegu ofbeldi og hvernig við getum fengið aðstoð ef við upplifum eitthvað sem okkur finnst erfitt.
Réttur til að vera örugg

Hvað er barnavernd?

Hver getur hjálpað þegar barn á erfitt heima? Hvað gerir barnavernd? Hér er hægt að læra meira um barnavernd og um annað fullorðið fólk sem getur hjálpað börnum.
Hvað er barnavernd?

Að segja frá

Hvers vegna getur verið erfitt að segja öðrum hvernig okkur líður í raun og veru? Og hvers vegna gæti verið góð hugmynd að gera það samt?
Að segja frá

Tilfinningarnar mínar

Það er mikilvægt að þekkja og hafa orð yfir tilfinningar okkar til að geta talað um hvernig okkur líður. Þá er auðveldara að koma orðum að því sem okkur sjálfum finnst, og skilja hvernig öðrum líður. Í  hlutanum „Tilfinningar mínar“ læra börnin meira um tilfinningarnar gleði, sorg og hræðsla.
Tilfinningarnar mínar

Skynfærin okkar

Við skynjum allt í kringum okkur með skynfærunum okkar. Það sem við sjáum, heyrum og skynjum með húðinni veldur því að við upplifum mismunandi tilfinningar.
Að kynnast skynfærum okkar gerir okkur auðveldara að skilja það sem við upplifum og eiga auðveldara með að koma orðum að því sem okkur finnst.
Skynfærin okkar